Til upplýsinga
• Gott er að lesa uppskriftina vel yfir áður en hafist er handa, það eykur skilning á prjónaferlinu.
• Vinsamlega látið vita ef villur finnast eða vantar aðstoð við uppskriftina - helga@horseplay.is
• Hjálpargögn og upplýsingar er að finna á heimasíðunni – www.prjon.is
• Mælt er með að máta oft til að vega og meta hvernig stykkið passar og aðlaga að eigin vexti/málum eftir því sem hentar.
Garn
Hedgehog Skinny Singles (fínband) og Mohair by Canard, Brushed Lace eða annað sambærilegt garn.
Magn og metrafjöldi
• Litur A = Hedgehog Skinny Singles 1 (2) (2) (3) (3) (3) (4) (4) (4) x 100 g 366 (732) (732) (732) (1098) (1098) (1098) (1464) (1464) m.
• Litur B = Hedgehog Skinny Singles 1 (1) (1) (1) (1) (2) (2) (2) (2) x 100 g 366 (366) (366) (366) (366) (732) (732) (732) (732) m.
• Litur C = Brushed Lace by Canard Mohair 5 (6) (6) (6) (7) (7) (7) (8) (8) x 25 g 1050 (1260) (1260) (1260) (1470) (1470) (1470) (1680) (1680) m.
Prjónfesta (sléttprjón Hedgehog Skinny Singles).
• 27 L x 37 umferðir = 10x10 cm (sléttprjón á prjóna # 3 eftir þvott).
• 25 L x 35 umferðir = 10x10 cm (sléttprjón á prjóna # 3 ½ eftir þvott).
Prjónar
Prjónastærðir # 3, 3 ½ , 4 og 4 ½ mm
Stærðir - sjá máltöflu hér fyrir neðan (mál eru án hreyfivíddar)